Uppboð á jólatré
Við höfum ákveðið að bjóða upp fagurlega skreytt jólatré með fæti og alveg tilbúið, keyrt heim á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er fallegt tré rúmir 2 metrar á hæð og er bæði þétt og fallegt.
Allur ágóði rennur beint til félaga okkar í Ísólfi á Seyðisfirði en þeir standa í ströngu þessa dagana vegna ofanflóða sem þar hafa gengið yfir.
Hver hlýtur þetta flotta tré sem sómir sér í hvaða stofu sem er eða í glugga hjá einhverju góðu fyrirtæki. Sýnum samhug í verki og bjóðum í.
Uppboðið klárast á mánudagskvöldið kl 20.

11 views0 comments